Glimmer varir heitar um áramótin
30.12.2011 | 15:49
Það sem ég elska mest við áramótin er að maður getur komist upp með að líta eins og diskókúla en samt ekki vera hallærislegur
Glimmer - pallíettur - skrautlegir hattar og over the top förðun er akkúrat það sem áramóta lúkkið snýst um!
Ég tók púlsinn á því hvað væri töff í ár og það sem stóð uppúr var augnförðun með sterkum litum og svo GLIMMER VARIR .... love
Gera varirnar svo sykraðar og djúsí. Þarf ekki að vera flókið - bara góður gloss eða varasalvi - laust glimmer eða jafnvel augnskuggi og smá glært shine gloss yfir ef þess þarf!
Lífstíll | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Vertu Hugmyndarík um Hátíðarnar - Litagleði um jólin
15.12.2011 | 13:38
Nú er aðeins rúm vika til jóla og ekki seinna vænna að fara að huga að jóladressunum.
Það er gott að hafa í farteskinu nokkur look þar sem maður puntar sig aldrei jafn oft eins og á þessum tíma. Við erum jú að tala um öll þessi skemmtilegu tilefnig eins og Jólahlaðborð, jólin sjálf, jóla-fjölskylduboðin, gamlárskvöld og nýársfagnaður!!
Jólakjóla trendið í ár eru Skemmtilegir litir - glis og glamúr og gamaldags rómantík ... svo eitthvað sé nefnt 
Stelpur! ekki vera fastar í svarta litnum þó að hann sé save ...
Marilyn Monroe inspired kjóll - 9990 kr frá Curvy.is
Skart frá curvy.is, Armband - 1290 kr og Eyrnalokkar 1290 kr
Dökkbleikur kjóll frá Curvy.is - 8990 , Netaleggings frá Curvy.is - 3990 kr
Skart frá Curvy.is, Spöng 1590 kr , Eyrnalokkar 1290 kr
Rómatískur Blúndukjóll frá Curvy.is - 9990 kr, Svört Bolero Peysa Frá Curvy.is - 4990 kr
Skart frá Curvy.is, Armband 1590 kr, Hálsmen 1490 kr
Páfugla blöðrutúnik frá Curvy.is - 9990 kr, Stretch Blaser Jakki - 7990 kr
Skart Frá Curvy.is, Páfugla eyrnalokkar 1390 kr, Páfugla Fjaðra hálsmen 1990 kr
Lífstíll | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Skemmtilegar hugmyndir að hárgreiðslum!
14.10.2011 | 00:20
Ertu á leiðinni á árshátíð... eða bara einhvert út á lífið eða veistu ekkert hvað þú átt að gera við hárið á þér og vilt breyta aðeins til.. Þá hefur snillingurinn hún Lilith Moon svarið!
Stelpan er alveg ótrúlega hugmyndarík og hefur yndi af því að töfra framm glæsilegar greiðslur sem eru ekki flóknar en þrátt fyrir það mjög elegant. Hún heldur bæði upp facebook síðunni http://www.facebook.com/lilithmoon og youtube síðu http://www.youtube.com/user/lilithedarkmoon þar sem hún póstar myndum og kennslumyndböndum reglulega.
hér koma nokkrar af mínum uppáhalds greiðslum hjá henni...
Lífstíll | Breytt s.d. kl. 00:26 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Geymd en ekki gleymd...
17.7.2011 | 09:52
Núna um daginn fékk að smá skammir frá vinkonu minni...
"hva.. ertu bara hætt með bloggið?? " ... uuu.. nei auðvitað ekki en sorry það hefur heldur betur gleymst í hamagangnum. Eftir að ég opnaði búðina mína www.curvy.is hefur heldur betur verið mikið að gera hjá mér, sem er bara alveg frábært því þetta hefur gengið alveg vonum framar!!
Og svo ekki nóg með það þá barst mér skemmtilegt verkefni eða að vera með vikulegan pistil á www.bleikt.is svo að það hefur verið nóg að gera.
En nú ætla ég að bretta upp ermar og fara að hugsa betur um þig elsku blogg ... og ég vona að þið haldið áfram að fylgjast með ;)
Ef að þið hafið ekki nú þegar séð pistlana mína á bleikt.is þá getið þið skoðað þá hér:
Tékklisti útileigupæjunnar: http://www.bleikt.is/tiskahonnun/Lesagrein/tjekklistiutilegupaejunnar
Vertu flott í brúðkaupunum í sumar:
http://www.bleikt.is/tiskahonnun/Lesagrein/vertuflottibrudkaupunumisumar/
5 góðar ástæður til að klæðast aðhaldi:
http://www.bleikt.is/fegurdheilsa/Lesagrein/5godarastaedurtiladklaedastadhaldi/
Lífstíll | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Nauðsynlegt að hafa húmor fyrir sjálfum sér
15.5.2011 | 22:31
Rakst á þessa á youtube og vá hvað hún er fyndin.. þessi steriotýpa af amerískri mömmu í úthverfunum sem bendir okkur á blákaldan raunveruleikann og gerir grín að honum.
Lífstíll | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Adele syngur af líf og sál
6.5.2011 | 23:46
Og enn tala ég um þessa frábæru og smekklegu söngkonu Adele. Stúlkan tók lagið um daginn í þætti fyrir sjónvarpsstöðina BBC og gaf svo mikla tilfiningu í lagið að hún nánast táraðist í endann. Ótrúlega flott hjá stelpunni. En Adele var ekki bara með flott performance, heldur var hún einstaklega smekkleg í svörtum kjól í sniði sem klæðir hana einstaklega vel og svo poppar hún þetta upp með glitrandi skarti.

Þú geturu fundið svipað look frá Curvy.is
kjóll frá curvy.is http://www.curvy.is/vara/229
eyrnalokkar frá curvy.is http://www.curvy.is/vara/244
hringur frá curvy.is http://www.curvy.is/vara/243
Skór frá Skór.is
Hér er svo myndbandið þar sem hún syngur - allir að hlusta ;)
Lífstíll | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Við elskum þessar línur...
21.4.2011 | 18:20
Þær eru svo flottar þessar stelpur, og það sem að gerir þær mest aðlaandi er sjálfstraustið og útgeislunin ... munið það 

Adele .. stórglæsileg og hæfileikarík söngkona. Mæli með að þið hlustið á hana.

Önnur flott söngkona - Beth Ditto. Alveg rosalega töff og lætur yfirleitt sjá sig í einhverju áberandi og öðruvísi klæðnaði á uppákomum.

Ef þið hafið eitthvað verið að fylgjast með seríu 16 af America's next top model þá er þessi stúlka - Kasia , að gera góða hluti - Ótrúlegt en satt þá er hún sett í plush size flokkinn. Hún sem er svo grönn...

Curvy Fegurðardrottning - vakti mikla athygli á sýnum tíma þegar hún var kjörin Miss Surrey og fékk pláss í keppnina um ungfrú England . Því miður vann hún ekki ungfrú England titilinn en mér finnst þetta stórt skref í áttina að réttu hugarfari.

sexy , sexy , sexy ... attitutið er allt 

Fannst þetta áhugaverð mynd þar sem hér eru sýndar 3 stelpur - þessi lengst til vinstri er size -1 (amerískum stærðum ) sem er liggur við hin almenna módelstærð í tískuheiminum, sú við hliðiná er stærð 2 ( amerískum stærðum) og sú sem er lengst til hægri er stærð 8 (ameriskum stærðum) ... ég held að þessi lengst til hægri sé lang flottust af þeim 
Lífstíll | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Curvy tískudrós leggur línurnar
10.4.2011 | 22:14
Hugmyndaríka tískudrósin Weesha leggur línurnar og sýnir okkur syrgjandi íslendingum hvernig curvy skvísur geta verið smartar og trendy:
![]()
Víði ljós mussa, leggings og ótrúlega töff skór sem setja punktinn yfir i-ið
![]()
![]()
Skyrtu-kjólar - klæðilegt , sumarlegt og þægilegt! Hvað fleira þarf að vera?
![]()
Falleg ethinc munstur er eitthvað sem á ekki að forðast - betra er að hafa munstrið smátt því stór munstur stækka okkur bara enn frekar.
![]()
Töffaraleg útkoma svartur síður kjóll með leður jakka og svo skór með attitude!
![]()
![]()
Taktu áhættu þegar kemur að skóm og veldur eitthvað öðruvísi!
![]()
Casual en töff
Lífstíll | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Töskur Með Caracter
28.3.2011 | 23:11
Þegar sólin fer að láta sjá sig aðeins meira hérna á klakanum og og loftið hlýnar smátt og smátt hellist yfir mig þessi spenna ... að nú sé sumarið að koma.
Ég labbaði aðeins inn í Accessorize í kringlunni í gær og þar var sko heldur betur komið sumar. Ég fann mig dragast að veggnum þar sem töskur í öllum regnbogaslitum voru fallega uppraðaðar. Það sem ég fíla svo við töskurnar þarna er að þær eru svo öðruvísi. Þær eru í raun og veru sona hálfgert centerpeice fyrir eitthvað dress sem er frekar látlaust og getur því skapað ákveðinn caracter .... svartur plain kjóll eða eitthvað dress sem er bara einlitt og svo ein svona flott skrautleg taska klárlega málið 
Hér er smá brot af úrvalinu í Accessorize:
Ég kíkti líka aðeins á www.asos.com og töskurnar þar eru í allöðrum stíl en þessar í Accessorize og eru líka mjög flottar:
Lífstíll | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Retró Krullur - verða vinsælar í sumar
21.3.2011 | 22:10
Ég hef mikið verið að velta því fyrir mér hvaða klippingu ég ætti að fá mér fyrir vorið- sumarið. Ég er búin að vera safna lengi og er komin með svakalegan lubba sem að ég er algjörlega orðin hugmyndasnauð hvað skal gera við... Alla daga er ég búin að henda þessu mikla hári upp í hnút.
En svo þegar ég tékkaði á hár-trendunum fyrir sumarið 2011 hætti ég snarlega við þá hugsun að klippa mig stutt - því að það sem verður heitast í hárinu fyrir sumarið eru retró krullur. þá er bara að taka upp krullu járnið og sjá hvaða útfærsla fer manni best 
Lífstíll | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)


