Bloggfærslur mánaðarins, júní 2010

Vaxtalagið mitt - Ferhyrnda vaxtalagið

Síðast þegar ég skirfaði um vaxtalag þá tók ég Stundaglasið sívinsæla... og ég eins og margar aðrar eflaust taldi mig vera stundaglas. En eftir að ég fór að grandskoða þetta vaxtalag komst ég bara að því að ég held að ég sé bara ekki stundaglas eftir alltsaman. Ég horfði á mig í spegli og sá ekkert afgerandi mitti... heldur var ég bara soldið bein. Jú auðvitað er maður með mitti en þið vitið hvað ég meina... ég var allaveganna ekki með sona stundaglas-mitti. Þannig að mín niðurstaða var að ég er það sem er kallað beint eða ferhyrnt vaxtalag.

body-shape-rectangle.gif

Þær sem eru sona eins og ég með beint vaxtalag einkennast af

Brjóstmál og mjaðmamál eru umþaðbil sama stærð og ekki svo afgerandi mitti.

Handleggir og fótleggir eru í réttum hlutföllum við en geta líka verið aðeins grannvaxnari

Brjósmál er yfirleitt sona medium stærð miðað við hlutföll ( það reyndar á ekki við um mig )

Sumar geta verið með flatan rass

Og það er algengt að þær sem eru núna með þetta vaxtalag voru eitt sinn með stundaglasvaxtalagið þegar þær voru grennri eða yngri

Því miður á maður til með að líta út fyrir að vera lávaxnari og eða þyngri en maður raun er

Og hvernig á maður að klæða sig þannig að maður líti út fyrir að vera með flottar línur??

  • Jakkar eða annar fatnaður með axlapúðum er tilvalinn til að gera betur grein fyrir öxlum eða efri parti, axlapúðarnir meiga hinsvegar ekki vera of stórir
  • Föt sem eru aðsniðin / semí aðsniðin
  • Ef að maður er með granna handleggi þá ættiru að vera í stutterma og hlíra toppum eða kjólum
  • Ef þú ert með frekar lítil brjóst þá klæðir þig  betur medium eða hátt hálsmál
  • Kjólar sem falla laust út frá mittislínunni
  • Beinar buxur og örlítið útvíðar buxur fara vel þeim sem eru með ferhyrnt vaxtalag
  • Pils í A-sniði

 

Hvað á að forðast:

  • Þröng föt – þau sýna hversu beinn maður er í laginu og maður vill frekar sýnast vera með flottar línur
  • Víðir toppar
  • Víðar buxur
  • Niðurþröng pils

 

Ég fann nokkrar þekktar konur sem eru falla undir ferhyrnda vaxtalagið

 

brook-shields.jpg

- Brooke Shelds Alltaf glæsileg! -

 

mary-j-blige-4.jpg

- Mary J. Blige er yfirleitt mjög góð að klæða á sig kvenlegu línurnar þó að þessi tiltekni kjóll geri það ekki -

 

drew-2.jpg

- Drew Barrymore -

 

hillary-duff.jpg

- Hillary Duff-

 

fergie.jpg

- Fergie í góðu formi -

cameron-diaz.jpg

-Cameron Diaz-

kim-catrall.jpg

- Og síðust en ekki síst hin glæsilega Kim Cattrall úr Sex and the city .. Kynbomban sjálf er með þetta ferhyrnda vaxtalag -

 

Þá þakka ég fyrir mig í bili og er farin í stutt sumarfrí ... kv. Fríða

 

 

 


Pæjudress fyrir útileiguna í sumar

 Fyrsta helgin í Júlí, Verslunarmannahelgin og fleiri aðrar helgar eru frammundan þar sem maður þarf að fara að hugsa .... ahh, helvítis útileiga.. eins og það er nú gaman þá er bara nánast ómögulegt að vera pæjuleg í íslenskri útileigu þar sem er allra veðra von.

Reyndar hefur ullarpeysan verið í tísku síðustu misseri en ég er ein af þeim sem get bara ekki verið í ull... manni bara klæjar svo helvíti mikið undan henni, og ég læt ekki sjá mig í risastórum kraftgalla! Fólk myndi bara kalla á eftir mér .. SÆL BANGSAMAMMA!

 ... Neinei bara smá grín Tounge, en ég fór af stað og ákvað að leita að útileigu dressi fyrir næstu helgi... og næstkomandi útileiguhelgar sem að gerðu sitt gang -  Hlýtt og flott á sama tíma !

bleik-rigning.jpg

- Stígvél-anorakkur og renghlíf :  Accessorize -

red-and-style.jpg

Stígvélin eru geðveik og eru frá jimmy choo - það er hægt að panta þau að net-a-porter.com  , Blómóttur regnjakki er frá redherring-Debenhams, Rauðbleik flíspeysa frá northface-útilíf, vettlingar frá cintamani og auðvitað crusal aukahlutir, sólgleraugu úr accessorize og regnhlíf úr debenhams.

dagny_3.jpg

Mér finnst síðu fleece peysurnar frá cintamani alveg ótrúlega töff og virka alveg fyrir útileiguna

janus-fot.jpg

Tilvalið að vera í þessu sætu ullarnærfötum frá Janus innanundir öllu, og nota buxurnar bara eins og Leggings innanundir hlýja kjóla eins og flískjóla eða ullarkjóla

ester09.jpg

Þett er eitt af uppáhaldsflíkunum mínum, keypti mér eina sona Cintamani úlpu fyrir 2 árum og hún er að mínu mati alveg möst í útileigum þegar það er orðið kalt á kvöldin... og að sjálfsögðu á veturnar líka.

elva_09.jpg

Það er augljóst að ég sé hrifin af Cintamani vörunum ,  en Elva -  flíspeysan er á mjög góðu verði og gerir sitt gagn ... og flottust í bleiku fyrir sumarið ;)

didrikson.jpg

Vindur- Rigning eða bara bæði á sama tíma - þá verður gott að vera með sona hlífðar dress , Didrikson jakkar og hlífðarbuxur eru töff og líka á ágætis verði í Ellingsen

  ....  Svo á maður bara að njóta þess að vera flottur og líða vel á sama tíma því að það er fjárfesting að kaupa góðan útivistarfatnað sem maður er sáttur við, því þetta endist manni nefnilega í mörg mörg ár!


Tískuvika í New York fyrir plus-size

Nú um þessar mundir er stórviðburðu í gangi í New York.  FFF- week ( full figure fashion week ) er tískuvika sem hefur það góða þema að einblína á hönnuðir og verslansir sem eru með fatnað fyrir konur í stærri stærðum. Þetta er í annað sinn sem að fff-week er haldin en það var brotið blað í sögu tískunnar þegar fff-week var haldin í fyrsta skipti í fyrra. Að sögn Gwen DeVoeframkvæmdastjóra tískuvikunnar heppnaðist þetta svo rosalega vel og fór framm úr öllum björtustu vonum að ákveðið var að gera þetta að árlegum viðburði.

Þá er bara að vona að Íslenskir hönnuðir, sem eru að gera alveg frábæra hluti fari að skoða þetta consept og byrji að prómótera og bjóða vörurnar sínar fyrir stærri konur, því það er alveg nóg af okkur þarna úti og við viljum líka vera flottar ;)

GDevoe_OpeningNight_Blvd1-225x300

- Gwen Devoe með opnunarræðu -

Blvd_OpeningNight_Crowd-300x225

- Áhorfendur bíða spenntir eftir fyrstu tískusýningunni -

lg_whitelong

- þetta er frá versluninni monifc sem er meðal þeirra sem sýna á tískuvikunni -

lg_whiteruffle_1

- monifc -

lg_tangerineshort

- monifc -

lg_blackjumpsuit_2

- monifc -

mod-diva.png

- Hér er annar hönnuður sem sýnir á tískuvikunni  Chan.nel Karama -

 mod-diva2.jpg

- Can.nel Karama -

mod-diva3.jpg

-Can.nel Karama -

 

 


Stundaglasið - vinsælasta vaxtalagið

Það má segja að stundaglasið sé einn af eftirsóttustu vaxtalögunum, Margar af kynþokkafyllstu stórstjörnum falla undir þetta vaxtalag. Stundaglasið getur verið í hvaða stærð sem er en það er lögunin sem sker úr um það hvort að maður sé Stundarglas eða ekki. Þær konur sem eru með þennan líkamsvöxt einkennast af grannri mittislínu og eru jafn breiðar að ofan og neðan.

 

Konur sem eru með stundaglas vöxinn ættu að draga athyglinni að mittinu sem undirstrikar þennan kvenlega og kynþokkafulla vöxt. Þið sem eruð með þennan vöxt eruð nokkuð heppnar með það að það er mjög mikið sem klæðir ykkur.

Female-Hourglass-Figure

 

Hverju áttu að klæðast?

 

  • Aðsniðin og semi-aðsniðin föt
  • Föt úr léttu og mjúku efni með Áberandi litum og munstri
  • Flegið hálsmál eins og t.d“ V“ eða „U“hálsmál
  • Kjólar sem eru með mittis-stykki eða tekknir saman í mittið og falla létt yfir mjaðmirnar
  • Korselette
  • Buxur sem eru beinar í sniðinu
  • Pils sem eru bein í sniðinu eða með örlitlu „A“ sniði
  • Belti í mittið

 

 

Hvað á að forðast:

 

  • Föt úr stífu og fyrirferðamiklu efni
  • Vítt snið
  • Hátt hálsmál  ( nema ef maður er með lítil brjóst
  • Föt með axlapúðum

Hérna kemur gott dæmi um það hversu miklu máli skiptir að klæðast rétta sniðinu... annars er maður í hættu með að klæða á sig nokkur kíló.

NOT TO WERE

TO WERE

Og eins og þið sjáið þá eru konur með þennan vöxt alveg einstaklega kynþokkafullar, enda segja karlmenn að þetta sé miklu meira aðlandi en "size 0"

marilyn

- Marilyn Monroe

 amd_beyonce

- Beyonce 

scarlett

- Scarlett Johanson

dita

- Dita Von Tese

janie

- Jayne Mansfield

salma-hayek-boobs-cc

- Salma Hayek

 

 

 


Algjört "möst" á sólarströndina!!

Nú fer að líða að því að fólk fari í sumarfrí og eflaust eru þarna einhverjir sem ætla að skella sér á sólarströndina, kíkja á næturklúbbanna, súpa á kokteilum og gera góð kaup í verslunum erlendis... því ótrúlegt en satt þrátt fyrir gengið þá er allt  alveg minnst 30% ódýrara út en hérna heima á okureyjunni!

Eitt af því sem mér finnst erfiðast viðþað að ferðast... það er að pakka niður. Ég er alltaf svo stressuð yfir því að gleyma einhverju ...kannski af því ég yfirleitt gleymi alltaf einhverju Tounge  Sjálf er ég á leiðinni til Spána í September en fyrir ykkur sem farið fyrr í sumar þá hef ég útbúið hérna smá lista af því sem er "möst" að taka með sér til sólarlandsins.

 

1. Létt og þæginleg föt til að vera í yfir daginn

 beach-day.jpg

 

2. Litríkir og sumarlegir kjólar til að kíkja á klúbbinn í

asos-djammkjolar.jpg

Kjólar frá Asos.com

 

3. Í fyrra keypti eg mér stuttar og þunnar nælon hjólabuxur sem maður notar undir pils og kjóla ... þá sleppur maður alveg við núningssár milli læranna :)

evans-hjolab.jpg

4. Eitthvað flott og klæðilegt sem maður getur skellt utanyfir Bikiníið þegar maður er að rölta niður á strönd eða bara ef maður ætlar að rölta á sundlaugabarinn og er kannski pínu spéhærddur ;)

strandarkjolar.jpg

Sharong- Accessorize , Svartur gegnsær kjóll - Asos, Sharong -Accessorize, Röndóttur kjóll- Dorothy Perkins

 

... Ég gæti reyndar haldið endalaust áfram.. haha eins og ég skrifaði hér fyrir ofan þá er ég alveg hræðileg í því að pakka niður og oft endar það með því að ég pakka niður öllum fataskápnum mínum ... þó að það eigi að sjálfsögðu ekki að vera neitt stress.. því maður ætti að geta keypt all sem maður nauðsynlega þarf á áfangastaðnum Wink


Vaxtalag vikunnar... er "Eplið"

Vaxtalag er eitt af því sem við konur erum alltaf með á heilanum.  Útlitssérfræðingar hafa flokkað og greint þessi helstu vaxtalög kvenna í þeim tilgangi að hjálpa þeim að finna hvaða snið hentar þeim best. Ég ætla aðeins að skrifa um „Eplavaxtalagið“ sem að um 30% kvenna falla undir.
Bæði Sporösku og Tígulvaxtalagið fellur undir þetta svokallaða Eplavaxtalag og lýsir sér sona:

Sporösku vaxtalag:

  • Lítil eða engin mittislína
  • Grannir handleggir miðað við búk.
  • Neðri-magi er stærri en efri-magi
  • Algengt að þær sem eru með sporöskjuvaxtalag séu með „love handles“
  • Breiðar Mjaðmir
  • Þykk læri
  • Rass getur bæði verið stór eða flatur

 sporoskulaga.jpg
Tígulvaxtalagið :

  • Lítil eða engin mittislína
  • Stór efri-magi
  • Þær sem eru með tígulvaxtalagið geta verið með „Love handles“
  • Útlimir grannir miðað við búk
  • Rass getur bæði verið stór eða flatur

digullaga.jpg

Og hvernig á svo að klæða sig ef maður flokkast undir Eplavaxtalagið ? Til að blekkja augað eiga konur með eplavaxtalagið að undirstrika þríhyrnings vaxtalagið með því að draga athyglina upp að öxlum og andliti.


Hverju áttu að klæðast?

  • Eyrnalokkar, Hálsmen sem eru áberandi leiða augun upp og draga athyglinni að öxlum og andliti.
  • Föt sem eru ekki mjög aðsniðin heldur lyggja laust á líkamanum
  • Axlapúðar eins og jökkum undirstrika axlirnar og virkar mjög vel einnig púff ermarnar sem einstaklega mikið inn í dag  ;)
  • Mikilvægt er að vera í brjóstarhalda sem passar rétt og heldur brjóstunum uppi
  • Aðhaldstoppurinn er náttúrulega ómissandi og eða aðhaldsnærbuxurnar
  • Efri og neðripartur í samalit -  eða einlitur kjóll
  • Flegið hálsmál
  • Toppar og kjólar sem falla beint meðfram mittinu
  • Beinar og lausar buxur
  • Pils sem eru frekar bein í sniðinu


Hvað á að forðast:

  • Mjög aðsniðnum og þröngum fötum
  • Föt sem eru með stóru munstri
  • Rúllukraga eða háu hálsmáli
  • Ekki nota belti það dregur athyglinni að maganum
  • Ekki girða bolinn ofan í buxurnar eða pilsið
  • Föt með fellingum
  • Niðurþröng Pils
  • Niðurþröngar buxur

 Af þekktum konum með þennan vöxt má nefna America Ferrara ( Ugly Betty ), Jennifer Hudson, Queen Latifa, Kelly Osbourne og Drew Barrimore ... svo eitthvað sé nefnt.

america-ferrera_preview.jpg

america-ferrera_preview2.jpg

jennifer-hudson-new-years.jpg

queen-latifah-super-bowl-1265660471.jpg

queen-latifah-arrive9bbd4f1.jpg


Dressið fyrir Sjómannadaginn!

sailor-banner.jpg

Vintage Sailor tíska hefur verið að dreyfa sér í verslanir síðasliðna mánuði og ekkert skrítið því að þetta minnir mann óneytanlega á sumarið. Sjá má að hönnuðir sailor tískunnar hafa fengið innblástur frá gamla tímanum þegar Marilyn Monroe og skvísur voru uppi og eru sniðin alveg einstaklega kvenleg, tilvalið til að undirstrika til fallega siluette línu.

Sailor

 

foxtee2
- Dress úr Asos
evans.jpg
- Evans
espadillur.jpg
- Elska þessar Espadrillur úr HM
 
evans-sjomannakjoll_997212.jpg
Sætt munstur, Þessi er úr Evans
 
dp-navy.jpg
- Dorothy Perkins

Sex and the City ... setur trendið!

Ég var alveg gríðalega heppin að fá að vera boðin á sérstaka forsíningu á Sex and the city í gærkvöldi og fékk  smá "sneak peak"  á trendin sem þessar skvísur eru vanar að setja.

Glamúr, Sumar, Kokteilar, Austurlönd, Hjónaband, Tíðahvörf og móðurhlutverkið .... Bara sona eitt af því sem þessi æðislega mynd hefur upp á að bjóða.

ÉG verð að viðurkenna það að það sem þær klæddust í sumum senunum var soldið over the top, en þetta eru bara eins og poppstjörnurnar og hátískuna.. þetta getur verið over the top en er svo tónað aðeins niður fyrir tískuvöruverslanirnar. 

Hér kemur það sem mér fannst vera töff í myndinni, sem mæli ég líka með því að þið kíkið á nýjasta tölublað nudemagazine þar sem þær eru með nokkrar opnur torðfullt af Sex and the City trendi ;)

middle-east-party.jpg

Sterk áhrif frá Mið - Austurlöndum 

oasis-kjoll.jpg

Kjóll húr Oasis

red-forever21.jpg

Forever 21

gkwqh.jpg

Sandalar úr Accessorize

belti-hm.jpg

Belti - H&M

carrie-neckl.jpg

Stórir skartgripir eru mjög áberandi í myndinni

samantha-earrings.jpg

Stórir Eyrnalokkar með látlausum kjól.

armmband-hm.jpg

Armband - H&M

eyrnalokkar-acc.jpg

Eyrnalokkar -  Accessorize

carrie-hair.jpg

Takið eftir hárgreiðslunni í byrjun myndarinnar -  geðveikt töff!

 

 


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband