Bloggfærslur mánaðarins, janúar 2011
Jæja elskurnar , nú er mikið búið að vera í gangi. Ég hef verið á kaf í undirbúningsvinnu og hef því ekki getað gefið mér tíma í það að blogga.
Málið er að ég er búin að vera að stússast í því að láta gamlan draum rætast. Ég er að fara að opna verslun sem verður til að byrja með aðeins á vefnum. Í vefversluninni verður boðið upp á flottan fatnað í stærri stærðum eða 14-28 / 42-54. Stefnan er tekið að opna vefverslunina í miðjan febrúar en það er ekki komin alveg föst dagsetning. Hér kemur smá brota brot af úrvalinu sem verður í versluninni ... endilega að fylgjast svo bara með
Uppskriftir að skrúbbum - tilvalið í heimadekrið
20.1.2011 | 22:19
Í framhaldi af síðustu færslu um appelsínuhúð langaði mig til að birta nokkrar uppskriftir sem ég fann að náttúrulegum kremum og skrúbbum. Þetta er allt eitthvað sem við getum fundið heima hjá okkur eða út í búð og getum mixað saman á stuttum tíma
GRÓFUR LÍKAMSSKRÚBBUR
1 1/2 dl - Gróft salt (en ef þú ert með viðkvæma húð er betra að nota fínt salt)
1 1/2 dl - Kókos olía , möndlu olía eða blómaolía ( það er líka hægt að nota olívu olíu en mörgum finnst kannski ekki vera eins góð lykt af henni )
Blanda saman með skeið.. hrærist ekki mjög vel saman það er nánast ómögulegt.
Ef að maður vill fá góða lykt af skrúbbinum er tilvalið að setja nokkra dropa af ilmolíu útí og hræra. Svoleiðis olíur fást t.d í Body Shop.
Þegar þetta er tilbúið er tilvalið að skella þessu í sæta krukku!
Skrúbbaðu þig áður enn þú ferð í bað eða sturtu , skrúbburinn virkar best þegar húðin er þurr. Góðir skrúbbhanskar fást bæði í hagkaup, apotekum eða í Bodyshop - mér finnst þæginlegra að nota hanska en annars duga hendurnar vel. Nuddaðu síðan skrúbbinum í hringlaga hreyfingum um allan líkamann og eða strjúktu í átt að hjartanu.
Ef þér finnst saltið rispa húðina of mikið skaltu bæta aðeins olíu út í krukkuna
Þessi skrúbbur geymist vel svo þú getur lokað krukkunni og notað hann aftur.
-------------------------------
HAFRA SKRÚBB FYRIR ANDLIT
2 mtsk. haframjöl
2 mtsk. maísmjöl
2 tsk. hveitikím
1 mtsk. hunang
1/4 tsk. appelsínu eða möndlu p. orange or almond kraftur
Blandið saman í skál. Blandið útí vatni þannig að blandan verði nokkuð þykk.
Notkun: nuddið andlit eða líkama. Skrúbbinn endurnýjar dauðar húðfrumur og gerir húðina silkimjúka. Til að mýkja húðina látið liggja á húðinni í 10 mínútur. Hreinsið og hendið afgangi í ruslið, getur stíflað vaska!
------------------------------
HUNANGS HREINSI SKRÚBBUR
1 mtsk. hunang
2 mtsk. fínsaxaðar möndlur
1/2 tsk. sítrónusafi
Blandið saman.
Notkun: nuddið létt á andlitið og skolið með volgu vatni.
Lífstíll | Breytt s.d. kl. 22:22 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Appelsínuhúð - hvað er til ráða?
18.1.2011 | 00:20
Þrátt fyrir að meirihluti kvenna sé með Appelsínuhúð að einhverju leiti og finnst mér það hinn eðlilegasti hlutur, þá þykir það víst ekki vera í tísku. - En er hægt að losna alveg við Appelsínuhúð?
Hvernig skildi standa á því að þessi leiðinda bylgjuáferð húðarinnar hrjái meirihluti kvenna?
Samkvæmt doctor.is er Appelsínuhúð skilgreind sem staðbundnar breytingar og ójafnvægi í starfsemi undirhúðar, sem breytir lögun á kvenlíkama. Það má alls ekki misskilja um að þetta sé einhverskonar sjúkómur sem ekki er hægt að losna við, heldur er þetta ákveðið ástand á húðinni sem hægt er að bæta með réttum aðferðum.
Hverjar eru svo orsakir Appelsínuhúðar?
Ýmsir ósiðir ( lélegt mataræði, reykingar, áfengi, slæm líkamsstaða)
Mikil kolvetnaneysla
Hormónatruflanir (ójafnvægi tíða, ólétta)
Streita, veikindi, mikið álag, ástvinamissir, skilnaður og fl.
Vandamál í hringrás blóðs og sogæða
Hverskyns átröskun (Bulimia, Anorexia og ofát)
Erfðir og jafnvel kynþáttur ( Hvítar konur hafa meiri tilhneigingu til að mynda appelsínuhúð en asískar eða svartar. Suðrænar konur mynda frekar appelsínuhúð á mjöðmum, en norrænar á maganum.)
Mikil Salt neysla sem veldur vökvasöfnun
Trefjalítil fæða getur valdið hægðatregðu sem getur valdið mótstöðu blóðflæðis frá fótum.
Kyrrseta
Það eru örugglega allir sekir um eitthvað á þessum lista ... en það þýðir ekkert að væla, því að eru enn nokkrir mánuðir í sumarið og því nægur tími til að taka sig á! ... En hvað er þá til ráða?
Að mæta í ræktina er góð byrjun en er það ekki alltaf nóg ( íþróttakonur geta verið með appelsínuhúð) og þá mæla læknar með Endermologie meðferð sem er fljótleg og sársaukalaus. Meðferðin er sogmeðferð og með soginu hristast fitufrumurnar og gefa frá sér fituagnir út í blóðið og melting á fitunni á sér stað.
Einnig stóreykst allt blóð og sogæðaflæði, þannig að bæði fær fruman meiri næringu til sín og öll hreinsun verður miklu betri. Smátt og smátt er búið að vinna á vandamálinu það vel að lærin eru aftur komin í upprunalegt form, slétt og stinn. Hinscegar þarf allt upp í 20 skipti til að fá endanlegan árangur.
Síðan er allt litrófið af celló-kremum en ég get nú ekki sagt að það hafi eitt og sér einhver gríðarleg áhrif en með öðrum meðferðum gæti kremið stuðst við, enda er nauðsynlegt að næra og verja húðina með kremum. Eitt ráð í sambandi við krem ... þau dýrustu eru ekki alltaf best. Ég persónulega leita í náttúruleg krem og skrúbba - finnst þau gefa mér meira boost! ... Svo er bara að vera dugleg í sturtunni með skrúbb-hanskann til að hrista upp í þessum fitufrumum
Svo eru það trefjar (fræ, epli, appelsínur grófir hafrar) og andoxunarríkt (Grænt te - Tómatar, Bláber, Jarðaber og allir litríkir ávextir.) mataræði sem hjálpar að fyrirbyggja Appelsínuhúð.
Með aldrinum verður erfiðara að losna við Appelsínuhúð ... en ekkert er ómögulegt
Kim Kardashian - þessi ofurskutla er ekkert að fela það að hún sé með appelsínuhúð.. enda er það ekkert til þess að skammast sín fyrir.
Lífstíll | Breytt s.d. kl. 12:49 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Size is a Number, Confidence is a Choice
13.1.2011 | 20:27
... þetta eru einkunnarorðin frá dönsku hönnuðum Weiss og Lykke í Carmakoma. Þær hafa áttað sig á því að Curvy konur í yfirstærð hafa alveg jafn mikinn áhuga á tísku og aðrar konur og hafa þær því tekið höndum saman og skapað fallegan gæðafatnað sem þær selja meðal annars á vefsíðusinni www.carmakoma.com. Carmakoma hefur nú verið starfrækt í um 2 ár og blómstrar sem aldrei fyrr.
Þetta eru konur að mínu skapi því í teaser-num fyrir nýju línuna þeirra er sjálfsöryggi þema myndbandsins.
Útsala stendur nú sem hæst um Þessar mundir en ég hef kynnt mér það að Carmakoma sendir út um allan heim fyrir 20 evrur per sendingu. Þetta er kannski eitthvað sem er vert að skoða...
Lífstíll | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Pælum aðeins í sumrinu.
11.1.2011 | 00:34
Nú þegar liðið er á vetrar útsölurnar er lítið sem ekkert spennandi eftir. Maður hreinlega bara bíður eftir nýju vörunum. Þessu litríku fallegu sem gefa manni sól í hjarta... þótt að það sé lítið um sól á Íslandi.
Ég hef verið að skyggnast inn í nýju línurnar hjá hinum og þessum og séð hvaða áhrif séu á leiðinni.
Hönnuður hafa verið hrifnir af sniðum frá 50's og 60's. Formin ýta undir curvy vöxt og kveinleika. Kjólar sem eru teknir saman í mittið og koma niður fyrir hné sem búa til stundarglasið (vaxtarlagið) ásamt ferskum litum. Hönnuðir hafa einnig verið að leika sér með Flæðandi fellingar og brot í pilsum, kjólum , toppum og ermum. Fleiri áhrif frá 70's munu sjást í sumar, allt frá flæðandi glamúr kjólum og í háar buxur með skyrtu girta ofaní.
Blómamunstur í kjólum og toppum sosum ekkert nýtt þar á ferð en nú er búið að bæta aðeins í flóruna, munstrin eru mun grófari , minna stunum frekar á laufblöð og agressívari litir. Einnig verður eitthvað um abstrakt munstur.
Blúndurnar eru núna búnar að vera nokkur season, og eins og flestir hlutir sem eru vinsælir í langan tíma taka þeir smá breytingum milli tímabila. Fyrir vorið 2011 fá blúndurnar áhrif frá að fá klassískum, antík stíl. Og í framhaldi af blúndum þá verða heklaðir kjólar, léttar heklaðar peysur og heklaðir fylgihlutir vinsælir í sumar.
Nú verður Bad-girl lookið inflúensað af pönkinu og Mótorhjólunum. Við sáum aðeins af því í vetur en það heldur áfram . Þvegnar buxur, Leður, ísaumaðir búðar, a nettir silfurgaddar, rennilásar, Beltisólar, öryggisnælur og Hermannaklossar .... alveg ótrúlega töff, þarf að segja eitthvað meira...
Áhrif frá Afríku fá að njóta sín í sumar. Gróf Afrísk munstur og jarðaundir fylgihluti. Dýramunstur verða áfram í sumar ásamt mjúkum jarðtónalitum.
Capri pants eða kvart buxur eins og veið seigum á góðri íslensku verða sjóðandi heitar núna. Uppábrot, rennilásar og rykkingar svo eitthvað sé nefnt er það sem einkennir kvartbuxurnar í ár.
Það kemur ekki sumar án þess að það séu rendur. Þessi tenging við sjóinn og sólina er alveg órjúfanleg... Svo er bara að fylgjast með og sjá hvert stefnan tekur þegar fer að líða á seasonið :)
Lífstíll | Breytt 13.1.2011 kl. 20:00 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Real size en ekki Plus size
3.1.2011 | 22:36
Gleðilegt ár kæru lesendur... við skulum byrja árið á jákvæðni eins og mér heyrist flestir vera að gera en ég hef ákveðið að velja módel mánaðarins nú reglulega.
Janúar módelið heitir Sheridan Watson. hún er aðeins rúmlega 17. ára gömul en vakti athygli í módelkeppninni "Fiercely Real Model" sem Tyra Banks stóð fyrir á vefnum og í þættinumsínum the Tyra Banks show á síðasta ári. Sheridan var valin úr hópi þúsunda lögulegra stúlkna sem voru á aldrinum 13 -19 ára en Það sem gerði Sheridan einstaklega sigurstranglega var jákvæðni og útgeislun hennar. Eftir keppnina hefur hún verið að vinna meðal annars fyrir Forever 21+ og hefur hún fengið mikla umfjöllun á Vouge.it vefnum.
Sheridan telur sig ekki vera plus size model heldur real size model þar sem hún sé í fatastærð 14, sem er ein algengasta fatastærð kvenna í dag. Sheridan segist vera fullkomlega ánægð með sjálfan sig og dásamar lögulega vöxt sinn.
Þessi stúlka er klárlega flott fyrirmynd og hvet ég alla til að horfa á myndbandið sem Vouge italia setti inn á vefinn sinn. Jákvætt viðhorf á nýju ári Smellið á myndina til að horfa á videoið:
Lífstíll | Breytt s.d. kl. 22:52 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)