Verslunar-lífið í Osló og Eurovision
26.5.2010 | 22:40
Nú er skvísan stödd í Osló, soldið kalt.. minnir helst bara á Ísland en ég krosslegg fingurnar að það rætist ekkert úr rigningunni sem er í kortunum.
Ég og vinkonurnar lentum hérna í hádeginu og rukum beint með töskurnar upp í íbúð og svo beint á verslunargötuna. Það er alveg æðislegt að komast í annað verslunar umhverfi og ég er búin að uppgötva alveg fullt af búðum. Að sjálfsögðu byrjaði maður í HM en síðan lyggur leiðin í Bik Bok, Weekday, Gina trigot, Cubus, Lyndex .... bara svo ég nefni eitthvað.
Síðan heldur gleðin áfram því að sjálfsögðu heldur maður í Eurovision Partý á annaðkvöld, upphitun á föstudaginn og svo keppnin sjálf á Laugardaginn .. veiii. Stemningin hérna í bænum er gríðarleg fullt af túristum, híru fólki og ég er ekki frá því að ég hafi rekist á Gríska söngvarann hérna áðann á verslunargötunni... OPA!!
En hér er smá sýnishorn af úrvalinu í HM hérna í Osló:
.... byð að heilsa frá Eurovision Borginni ;)
Athugasemdir
Svo ætlum við líka að sleppa okkur í DinSko... og leyfa okkur að púkast inn í Monki ;) - vonandi er það ekki of dýrt :) OPA..
Anna Begga (IP-tala skráð) 27.5.2010 kl. 08:09
Æði! Happy shopping ;)
Auður NV. (IP-tala skráð) 27.5.2010 kl. 18:46
Er alveg að fíla espadrillur fyrir sumarið :D rosa gaman að lesa bloggið þitt Fríða :) keep it up...
Fanney (IP-tala skráð) 1.6.2010 kl. 18:03
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.