Ný vefverslun í Bretlandi með stærri stærðir lítur dagsins ljós.
28.10.2010 | 21:22
Ein af lesendum mínum var svo elskuleg að benda mér á nýja síðu sem er með stærðir frá 14 - 26 .
En þessi síða er ekki bara að bjóða uppá fatnað í stærri stærðum heldur getur maður fundið líka flotta fylgihluti og skó. - Og það besta er að þeir senda til íslands fyrir ekki nema 6 pund.
Ég tók aðeins púlsinn á síðunni til að sjá hvað þau hafa að bjóða uppá,
Athugasemdir
væri geggjað að hafa þessa búð á íslandi
Guðrún (IP-tala skráð) 29.10.2010 kl. 16:29
Það er alltaf hægt að panta á netinu og láta senda heim til Íslands
Fríða Guðmundsdóttir, 29.10.2010 kl. 16:46
Váts, geggjuð outfit! Verst hvað maður er "hræddur" við að panta af netinu! Ætli maður neyðist ekki til að prófa ... fataskápurinn tómur og allt of dýrt hérna heima
Karitas (IP-tala skráð) 29.10.2010 kl. 21:25
já um að gera að prufa! - Ég hef pantað þónokkuð oft á netinu og ef eitthvað fittar ekki vel hef ég bara selt það á barnalandi :)
Fríða Guðmundsdóttir, 29.10.2010 kl. 23:06
Ég ætlaði að panta hjá þeim og jú þeir segja international orders fyrir 6 pund en á lista yfir löndin er Ísland hvergi á skrá.
Er búin að senda þeim línu en fæ ekki svar... Einhver sem hefur prófað að panta hjá þeim?
Hrafnhildur (IP-tala skráð) 10.11.2010 kl. 12:47
Ég held að við flokkumst undir Northern Europe þarna í listanum
Fríða Guðmundsdóttir, 10.11.2010 kl. 18:17
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.