Beth is back
15.10.2010 | 16:16
Söngkonan og fatahönnuðurinn Beth Ditto hefur verið að gera það gott enda alveg ótrúlega hæfileikarík. Það muna flesti eftir laginu Heavy Cross sem sló í gegn í fyrra. Beth sýndi það og sannaði að maður þarf ekki að vera þvengmjór - ýktur með sílikon og læti..til að vera töff Söngkona!
Beth er algjörlega óttalaus og gerir nákvæmlega það sem henni sýnist án þess að pæla í því hvað öðrum finnst! Allir ættum að taka hana Beth til fyrir myndar hvað þetta varðar
" Beth is Back " með geðveika línu sem hún hefur hannað fyrir Evans. Ég kíkti þangað í gær og þetta er eitthvað sem getur ekki farið frammhjá manni!
Athugasemdir
Beth fílar doppót, ég fíla doppótt. Ég er búin að kaupa mér þrjár doppóttar flíkur og eitt doppótt sængurver frá því í maí. Ég ætlaði að hætta þessari doppóttu vitleysu en sá í gær ótrúlega flottan doppóttan kjól sem ég mun líklega kaupa mér... Annars er ég ekki enn búin að finna hin fullkomnu boots. Leitin heldur áfram ;)
Tinna Rós (IP-tala skráð) 17.10.2010 kl. 21:12
Hahah! Geggjað :) Maður fær svo oft æði fyrir einhverju sérstöku! Þú ert náttúrulega með svo frábært úrval þarna úti!
Fríða Guðmundsdóttir, 17.10.2010 kl. 22:19
eru allar þessar vörur í Evans á Íslandi?
Guðrún (IP-tala skráð) 18.10.2010 kl. 18:27
Þetta er allt collectionið hennar - sumt er komið til íslands en ekki allt. Ég sá allaveganna Hjartakjólinn - gallapilsið með rennilásnum - peysuna með eldingunni , svo eitthvað sé nefnt.
Fríða Guðmundsdóttir, 18.10.2010 kl. 19:39
ég keypti bláa flauelkjólinn. Hann er ÆÐISLEGUR. Langaði í þann blómótta með sama sniði, græna og svarta síða kjólinn og jakkann en ekkert að því kom til landsins :((
Svo hrifsaði ég með mér allar leggings í minni stærð í línu Beth. Þær eru svakalega góðar
Þórhildur Löve (IP-tala skráð) 25.10.2010 kl. 12:09
Góð ;) En Evans fær sendingar vikulega þannig að það er bara að bíða eftir blóma dótinu
Fríða Guðmundsdóttir, 25.10.2010 kl. 15:25
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.