How to dress BIG boobs

Stór brjóst eru eitthvað sem flestar konur girnast , en fyrir þær sem hafa þau eru það ekki alltaf sjö dagarnir sælir – því þessar elskur geta :

1# flækst fyrir manni

2#  látið mann líta út fyrir að vera aðeins þéttari

3# Fyrir sum tilefni er einfaldlega ekki viðeigandi að flassa brjóstarskorunni.

4# og já ef ég minnist ekki bara á helvítis vöfðabólgan sem fylgir því að hafa stór brjóst.

En það er nú oftast til lausn á vandamáli .... og ég tel mig hafa fundið eitthvað út úr þessu.

Lausn númer  1:

Góður brjóstarhaldari til þess að halda þessum elskum á sínum stað : ég mæli þá sérstaklega með  minimizer frá Triumph – reynar alveg rándýrir en margborga sig því maður getur varla notað annað þegar maður hefur einusinni prófað þá – algjör snilld fyrir brjóstgóðar konur sem vilja minka barminn aðeins.

10000632

- Æðislegir brjóstarhaldarar -  svo þæginlegir - hef fengið þá í Debenhams og Hagkaup -

Lausn númer 2:

Rétt snið skiptir máli þegar kemur að því að klæða stór brjóst.  Ef að toppurinn eða kjóllinn er með brjóstssaum er mikilvægt að saumurinn komi undir brjóstin en ekki upp á mitt brjóst. Maður verður að sýna og draga framm mittið á sér til þess að brjóstin búi ekki til framlengingu á magann. Gott ráð við því er að nota t.d Belti í mittið. Veldu frekar toppa eða kjóla með breiðum hlírum heldur en mjóum hlírum, það gefur þér tækifæri á að vera í brjóstarhöldum sem að henda þér betur ásamt því að breiðu hlírarnir klæða betur konur með stór brjóst.

forever-dresses.jpg

- Gott snið á brjóstagóðar konur, þessir eru úr Forever 21 -

Lausn númer 3:

Ef að þú ert í þannig vinnu að þú getir ekki klæðst hverju sem er heldur verður að vera professional og vera ekki með brjóstaskoruna út um allt á business fundunum þá getur verið vandamál að finna réttu toppana -  margar skyrtur eru ekki hannaðar fyrir brjóstgóðar konur og ekkert er janf óþæginlegt og skyrta sem gapir :S . Rétt hálsmál er lykilathriðið,  Toppar með V hálsmáli en ekki of lágu klæða brjóstakonur best – Ekki vera með áberandi hálsmen því það dregur athyglina beint að skorunni. Veldu frekar eyrnalokka og armband til að fullkomna lookið! Í staðin fyrir hnepptar skirtur sem svo oft gapa eins og ég hef neft þá klæðir okkur betur bundnar skyrtur en þá er betra að vera í bol innanundir . Ef þú ætlar að klæðast tveimur pörtum eins og pils og top þá mæli ég með að þú sért í dökkum lit að ofan en ljósum að neðan til að draka ekki of mikla athygli að efri partinum.  Eitt sem ég mæli ekki með og það er að vera í rúllukragapeysum eða bolum því lætur mann líta út fyrir að vera breiðari að ofan.  

 bundin-skirta.jpg

Lausn númer 4:

Maðurinn minn er löngu farinn að kvarta yfir því að vera alltaf að nudda mig.... hehe , hvað get ég sagt annað en þær sem eru í sömu stöðu og ég með stór og þung brjóst ættu að þekkja það að það tekur á að bera þessar elskur 24/7 Smile En ég hef komist að því að Brjóstarhaldarar með þykkum hlírum ( eins og t.d. Triumph brjóstarhaldararnir)  – axlar og bakæfingar  ásamt yoga geta gert kraftaverk! Ekki gefast strax upp á æfingunum þó að þið finnið enn til í bakinu það tekur sirka 2 vikur fyrir líkamann að ganga í gengum aðlögunartímabil og eftir það mun ykkur líða mun betur  Grin

shoulder-exercises-15


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Sem betur fer þarf ég ekki að hafa áhyggjur af þessu ;)

Anna Begga (IP-tala skráð) 30.8.2010 kl. 22:17

2 identicon

Veistu nokkuð upp í hvaða stærðir Triumph brjóstahaldararnir koma? Mér finnst svo fáar stærðir selja t.d. mína stærð 36FF :/

Jenny (IP-tala skráð) 31.8.2010 kl. 02:04

3 identicon

veistu hvar er hægt að fá svona minimizer í H stærð?

Krissa (IP-tala skráð) 31.8.2010 kl. 10:41

4 Smámynd: Fríða Guðmundsdóttir

Mig minnir að Triumph komi upp í H stærð en þeir pannta ekki mikið inn af stærstu stærðunum þannig að það er fljótt að fara ( Ekki nógu og gott hjá kaupmönnum ).

En svo hef ég líka góða Reynslu af Misty undirfataverslun á laugaveginum og Ynja í Hamraborg í kópavoginum -  þessar 2 eru með Brjóstarhaldara í stórum stærðum og ég hef fengið frábæra þjónustu í báðum þessum verslunum

Fríða Guðmundsdóttir, 31.8.2010 kl. 20:53

5 identicon

Takk fyrir frábært blogg! :)

Hef tekið eftir því að þú notar svoldið myndirnar frá forever21.. Veistu eitthvað hvort hægt sé að panta á netinu og láta senda heim? Bý reyndar í london og þyrfti að láta senda þangað..
Hafði ekki hugmynd um að þeir í forever21 væru með alvörukonustærðir :) frábært að sjá það :)

Dagga (IP-tala skráð) 1.9.2010 kl. 12:06

6 Smámynd: Fríða Guðmundsdóttir

Sæl Dagga :)

Forvever 21 er einmitt uppáhalds búðin mín en því miður er hún bara úti í bandaríkjunum. En þeir eru byrjaðir að senda til nokkura landa, þar á meðal England og Norðurlandanna.  Ég hef panntað þarna nokkrum sinnum og látið senda á fólk sem ég þekki sem getur komið vörunum heim og hefur gengið ágætlega :)  Þú ættir endilega að notfæra þér það  

Fríða Guðmundsdóttir, 1.9.2010 kl. 22:27

7 identicon

Æðislegt!! :) fer strax í málið!! :)

takk takk :)

Dagga (IP-tala skráð) 1.9.2010 kl. 23:07

8 identicon

Skemmtilegt blogg!

Annað gott ráð fyrir brjóstgóðar konur er að eiga pínulitla öryggisnælu (ég nota þær sem eru oft notaðar til að festa verðmiða á föt) til að setja á milli talnanna á hnepptum skyrtum sem gapa örlítið, sést ekki neitt og kemur í veg fyrir óþarfa peep show ;)

Ólafía (IP-tala skráð) 24.9.2010 kl. 17:07

9 Smámynd: Fríða Guðmundsdóttir

Já þetta er gott ráð   ég er alltaf í vandræðum þegar kemur að skyrtum, tékka á þessu næst

Fríða Guðmundsdóttir, 24.9.2010 kl. 22:26

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband