Bloggfærslur mánaðarins, september 2010
Allar konur verða að sjá þetta!!
29.9.2010 | 16:11
Fanney vínkona póstaði þessu á facebook og þar sem ég á eina litla snúllu fékk ég bara gæsahúð.... það er rosalega mikið til í þessu... allar konur verða að sjá þetta, þetta er nýja herferðin frá DOVE,
Ég gróf upp meira sem tengist þessari herferð - ahugið þetta er ekki bein auglýsinga herferð heldur á að fá mann til umhugsunar um ímynd kvenna sem við erum sífellt að miða okkur við.
Mjög sorglegt að heyra í þessum ungu stúlkum...
Bloggar | Breytt s.d. kl. 17:51 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Auðvelt að gera flottar fléttur!!
27.9.2010 | 22:56
Fyrr í vor skrifaði ég færslu um mismunandi fléttur og enn eru þær alveg jafn flottar
Nú er ég búin að vera heima að æfa að gera nýjar týpur af fléttum heldur en ég er vön og fann þá þessi kennslumyndbönd á netinu sem hjálpuðu mér.
Þetta sýnir á auðveldan hátt hvernig hægt er að gera flottar fiskifléttu ... Allir ættu að geta ráðið við það!
Hér er annað gott kennslumyndband um BOHO-braids
Þetta er kannski fyrir þá sem eru vanari að flétta. Þetta er mjög töff og creative greiðsla.
Munið svo bara að þetta kemur kannski ekki í fyrsta ... heldur þarf maður að æfa sig og eftir 3/4 skipti er maður farinn að mastera þetta .... good luck
Bloggar | Breytt s.d. kl. 23:04 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Vangaveltur um sér íslensk trend....
19.9.2010 | 18:25
Síðastliðna 10 daga hef ég verið að njóta hitans og sólargeislana suður á spáni með familíunni og ákvað að taka smá tékk á straumunum fyrir veturinn suðurfrá.
Það eru eflaust allir sammála mér þegar ég skrifa og segi að maður getur nánast spottað íslending úr fjarlægð þegar við erum í útlöndum. Hávær glaðleg og.... klæðnaðurinn! Það er erfitt að finna nákvæmlega út hvað það er en það sem ég tók eftir var að við íslendingarnir vorum oftast nær svart eða dökk klæddir á meðan spánverjar eða aðrar þjóðir voru mun djarfari í litavali og þá meina ég muuunnnn.... því ekki þekki ég margar íslenskar stelpur sem klæðast gulum eða bleikum buxum og skræbóttum bolum á hæsta stigi! En þegar maður pælir í því iðum við í skinninu á að komast í bjartari liti og munstur þegar fer að vora hérna á íslandi... ég held að þetta sé eitthvað veðurfarstengt manni einfaldlega bara langar ekki til að vera svartklæddur í sól og sumri.
Hún Hafdís sem var að vinna með mér bennti mér á frábært efni eða sér íslensk tíska. Tískubólur sem má finna aðeins á íslandi og fannst mér því tilvalið að fylgjast með og bera saman við tískuna úti á spáni. Ég hef reynt að fyljgast með því hvað það er sem nær hámarki hér á íslandi en verður ekki eins vinsælt í öðrum löndum... afhverju skyldi það vera?
Allt úr íslenskum lopa er orðin alveg klassík! Enda fullkomið fyrir okkar kalda og óútreiknanlega loftslag.
Sundskórnir í Apótekunum breittust skyndilega í tískuvöru hérna eitt sumarið og eftir það hafa búðareigendur byrjað að flytja inn allskyns plast skó fyrir sumarið fyrir íslensku píurnar
Joe Boxer náttbuxur .... þetta var tíska sem ég náði aldrei, enda var ég kannski orðin of gömul þegar hún var sem hæst í hæðum því hún virtist meira ná til ungafólksins. En hinsvegar alveg rosalega þæginleg og afslöppuð tíska.. hehe
Ilmurinn Love Spell þessi óþefur var nánast á annari hverri konu - ég vil ekki móðga neinn en þetta var fínn ilmur í fyrstu en svo fékk ég algjört ógeð líka kannski ekki mín týpa af ilmi.
... Ég man reyndar ekki meira í augnablikinu en það er gaman að rifja þetta upp
En svona til gamans þá má segja frá því að ég þekki eina sem var úti í noregi í sumar og þar eru allar flottu píurnar í gúmmístígvélum en svona smart tísku típan en ekki eitthvað nokia eða viking - og annað með noreg þá var einhver að skrifa um það á barnalandi að samfestingarnir væru alveg að meika það þarna úti hjá frændum okkar ... hmm... ég er ekki viss um að ég eigi eftir að sjá fólk úti á götu í þessum samfestingum hér á íslandi en aldrei að segja aldrei
Bloggar | Breytt s.d. kl. 20:38 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Crystal Renn Photoshopuð til og frá
7.9.2010 | 22:13
Hin ofurfallega Crystal Renn sem hefur verið eitt mest áberandi "plus size". Nýlega voru birtar myndir af henni á umboðssíðunni hennar þar sem nýjar myndir af henni sýndu hana vikrkilega granna.
Crystal byrjaði ung að aldri að sitja fyrir og ekki leið á löngu en að hún fór að þjást af listarstoli og varð skuggalega grönn. Þegar hún áttaði sig á aðstæðum og sá hversu slæma heilsu hún var komin með gat hún ekki annað en kúplað sig út úr öllu og byrjaði að hugsa um heilsuna fyrst og fremst.
Crystal bætti á sig aftur og var fullkomlega hamingjusöm með "curvy" línurnar sem hún var komin með og byrjaði að sitja fyrir aftur en nú sem "plus size" model. Einnig skrifaði hún bók um lífsreynslu sína og hvernig hún náði að vinna sig út úr henni. Crystal hefu því verið talsmaður stærra kvenna og búið til þessa gyðju ímynd fyrir sjálfan sig.
Því kom þetta bæði aðdáendum hennar og fjölmiðlum mjög á óvart þegar myndirnar voru birtar. Crystal sagði í viðtalið við Glamour tímaritið að þetta væri því miður afraksturs photoshop, hún sagði að þetta líktist hennar líkama ekki neitt og að hún hafi verið sona grönn og að það hafi ekki verið sá líkami sem hún vildi aftur fá, hún væri alveg fullkomlega sátt við sig eins og hún væri.
Sumir fjölmiðlar vilja meina það að Crystal sé bæði photoshopuð stærri og feitari fyrir sumar myndartökur, en svo grennri fyrir aðrar! , Ég veit sossum ekkert hvað er til í því en mér alveg fáranlegt! Að geta bara ekki látið þetta photoshop vera og sýnt módelin eins og þau eru!!
- Myndin frá umboðssíðu Crystal -
- mynd úr vél frá sminnkunni á settinu -
- Hér getið þið séð muninn hvað var strokað í burtu -
- Crystal í Chanel auglýsingu - Chanel notar bara andlitið en ekki líkamann, afhverju skyldi það vera? -
- Er Crystal kannski bara búin að grennast? hér er virkar hún grennri á myndinni til vinstri -
- Crystal að módela fyrir hjá Torrid -
- plus size geta líka "póstað cuture" -
Bloggar | Breytt s.d. kl. 22:17 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Mætt í ræktina!!
2.9.2010 | 23:15
Eru ekki allir búnir að kaupa sér kort í ræktina?? Eða komnir í skemmtileg námskeið??
Ég er sko búin að taka trompið á þetta, Keypti mér kort í baðhúsinu og langar helst að eyða öllum deginum þarna inni, svo skemmtilegir tímar. Magadans, Bollywood, Afró, Hot Yoga ... ég bara get ekki valið hvað ég á að fara í ...
En svo er ekki bara nóg að kaupa kort og þykjast mæta maður verður að setja sér einhver markmið ... Ég er tildæmis með með margar flíkur í skápnum sem ég hef vaxið uppúr og get ekki beðið að komast aftur í, plús þá er Anna mágkona búin að lofa mér geðveiku vintage pilsi um jólin .. þar að segja ef ég kemst í það.
Annað sem fær mann til að vera geðveikt spenntann við að mæta í ræktina eru ný æfingarföt!! Það er ekkert jafn glatað og að vera í gömlum slitnum ofursveittum bol kvennahlaupsbol - jú þeir duga alveg en manni líður eins og maður geti meira ef maður er vel klæddur fyrir ræktina
- Nike Taska - Adidas bolur og Pura lime buxur, þær eru sko algjör snilld, maður getur brett þær upp eða niður eftir því hveru háar maður vill hafa þær -
- Nike Skór , Kúl casall brúsi, Adidas buxur og puma bolur -
- Nike Íþrótta toppar, puma taksa, puma puxur og svo Adidas síður bolur -
- Og svo hérna smá til að hita ykkur upp og koma ykkur í stuð fyrir ræktina -
Bloggar | Breytt s.d. kl. 23:16 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)