Naglalakkið sem er að slá í gegn!
20.2.2011 | 00:07
Það eru allir að tala um þetta!
Nýjasta naglalakkið frá O P I - Katy Perry línunni . Þetta er alveg ótrúlega töff naglalakk sem býr til sprungu effect ... Ótrúlega auðvelt að nota , maður velur sér bara lit til að naglalakka undir, síðan fer maður yfir með sprungu - naglalakkinu og síðan þegar það er þornað er gott að fara yfir með glæru lakki...og svo er bara að leika sér með að hafa mismunandi liti undir sprungu-lakkinu. Þið veriðið bara að sjá þetta með eigin augum .... Þessi Sprungu ( Crackle ) naglalökk eiga að fást í öllum betri apótekum
Katy Perry hefur sett trendið og eru fleiri framleiðendur farnir að bjóða upp á þessi sprungu-naglalökk, og þá í fleiri litum líka.
Stjörnurnar eru alveg sjúkar í þetta naglalakk - hér sést Fergie með gyllt og svarta Crackle naglalakkið.
Svo er bara að vera creative.. og prófa sig áfram
Athugasemdir
Gvöð hvað þetta er æði ! æ ég verð að fá mér svona!!!!!!
Guðmundur Júlíusson, 20.2.2011 kl. 01:30
Skora á þig Guðmundur.
Já þetta er æði, ekki þörf lengur að eyða löngum tíma í skrautmálun á neglurnar, nema að maður vilji eitthvað alveg spes
Guðrún Emilía Guðnadóttir, 20.2.2011 kl. 08:13
Akkurat, Þetta er svo sniðugt
Fríða Guðmundsdóttir, 20.2.2011 kl. 09:13
ég átti svona þegar ég var lítil, man mér fannst það geðveikt, keypti bæði svona og naglakk sem skipti um lit eftir skapi einhversstaðar í moll of america þegar ég var svona 11 eða 12 ára =) fyndið hvað allt fer í hringi
Berglind (IP-tala skráð) 21.2.2011 kl. 17:00
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.